“Æfðu alls staðar” er fjarþjálfun fyrir þá sem vilja geta æft hvar sem er þegar þeim best hentar, en um leið upplifa þá stemmningu sem fylgir því að mæta í tíma með öðrum.
Þeir sem eru í “Æfðu alls staðar” prógramminu okkar fá sendar 3-4 æfingar á viku í tölvupósti og geta þar fyrir utan tekið þátt í hóptímunum okkar á Ylströndinni í Nauthólsvík þegar þeir eiga þess kost. Vala sendir æfingarnar og leggur þær upp þannig að allir geti lagað þær að sínum aðstæðum. Hún svarar um hæl öllum spurningum um æfingarnar, útskýrir þær nánar ef með þarf og bendir á aðrar leiðir ef viðkomandi getur ekki framkvæmt ákveðna æfingu. Við erum að byggja upp vídeógagnabanka með æfingum, grunnæfingarnar eru komnar inn og aðrar bætast við jafnt og þétt. Sömuleiðis má lesa æfingapistla á vefsíðunni okkar.
“Æfðu alls staðar” er þannig í raun hópþjálfun með persónulegri nálgun.
“Æfðu alls staðar” félagar okkar búa bæði úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hentar þeim vel sem vegna vinnu eða annarra hluta vegna geta ekki mætt í fasta tíma, en vilja æfa undir leiðsögn kennara. Ketilbjöllurnar eru yfirleitt grunnurinn í æfingunum en við þær bætast æfingar með eigin líkamsþyngd og æfingar með náttúruleg tól og tæki eins og trjádrumba, kaðla og steina.
Þeir sem vilja vera með en hafa ekki fengið grunnþjálfun með ketilbjöllur, geta komið í grunntíma sér að kostnaðarlausu.
Verðskrá:
Árskort: Staðgreitt 49.500 kr / 4.900 kr á mánuði (kreditkortaáskrift)
Sex mánuðir: Staðgreitt 29.500 kr / 5.900 kr á mánuði (kreditkortaáskrift)
Nánari upplýsingar: Vala Mörk, yfirþjálfari, vala@kettlebells.is eða í síma 696 1179
