Þá er komið að því, fyrstu ketilbjöllunámskeiðum okkar fyrir fólkið (ekki þjálfaranámskeið) utan höfuðborgarsvæðisins. Við byrjum á Blönduósi þriðjudaginn 17. janúar og verðum svo á Hvammstanga á miðvikudeginum 18. janúar. Undirbúningur fyrir næstu heimsóknir er á fullu swingi, en við ætlum að heimsækja alla bæi, þorp og sveitir landsins í ár – svo lengi sem heimamenn vilja taka á móti okkur!
Þetta eru stutt og hnitmiðuð grunnnámskeið í ketilbjölluæfingum þar sem farið verður yfir helstu grunnæfingarnar og hvernig æfingar auka styrk, úthald og snerpu hjá ungum sem öldnum. Námskeiðin henta sérstaklega þeim sem æfa sjálfir og vilja ná meiri árangri í eigin æfingum. Þátttökugjaldið er 1.500 kr. Ketilbjöllur verða til sölu á staðnum á 25% afslætti í tengslum við námskeiðin.
Námskeiðið á Blönduósi er kl. 17.30 – 19.30, þriðjudaginn 17. janúar og verður haldið í íþróttahúsinu. Skráning og nánari upplýsingar, Egill Steingrímsson, 858 0850 og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169 / www.kettlebells.is
Námskeiðið á Hvammstanga er kl. 18.00 – 20.00, miðvikudaginn 18. janúar og verður haldið í Grunnskólanum á Hvammstanga. Skráning og nánari upplýsingar, Ingveldur Ása Konráðsdóttir, veldur@gmail.com og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169 /www.kettlebells.is