Kettlebells.is

Á döfinni

Kettlebells Iceland myndbönd - gerð af Jóni Viðari

KYNNINGARMYNDBAND 2009

STEVE MAXWELL - NÁMSKEIÐ Í SEPTEMBER 2009

ÚTIÆFING 2008

KYNNINGARMYNDBAND 2008

 

Kettlebells - hvað er þetta fyrirbrigði eiginlega?

 88lb_kb_70

Kettlebells kúla, eða Girya á rússnesku, líkist mest tekatli án stútsins (þar af leiðandi nafnið "kettlebell") eða fallbyssukúlu með handfangi.

Kettlebells kúlurnar hafa verið þekktar í núverandi mynd í meira en hundrað ár en upprunalega voru þær notaðar við vigtun á korni og öðrum landbúnaðarafurðum úti á ökrunum í Rússlandi. Með tímanum urðu mismunandi lyftur með lóðunum vinsælar keppisgreinar á mörkuðum eða við aðrar samkomur, og var þetta skemmtileg aðferð til að sýna styrk og úthald karlmannanna á staðnum.

Æfingar með kettlebellskúlum draga fleiri vöðva og liði inn í hreyfinguna en hefðbundnar æfingar með lóðum. Þegar fleiri en einn liður er hreyfður myndast "keðja vöðvahreyfinga", en það er náttúruleg aðferð líkamans við vinnu. Líkaminn er þjálfaður í að bregðast við álagi eins og hann þarf að bregðast við því í raunverulegum aðstæðum. Þegar þú þarft til dæmis að ýta bílnum þínum upp úr skafli reynir þú ekki að einangra lærvöðann að framanverðu til að ýta bílnum, heldur notar þú allan líkamann, vöðva og liði til að vinna verkið. Þessi samhæfing vöðvanna er einn mikilvægasti þátturinn í því hversu sterk við raunverulega erum, þegar við þurfum að ýta bílnum eða flytja húsgögn. Þegar þú æfir á þann hátt að þú lætur vöðvana vinna sem ein heild, örvar þú taugakerfið og eykur samhæfingu vöðvanna og uppskeran er styrkur og úthald sem gagnast þér í öllum aðstæðum; þ.e. hagnýtur styrkur!

Sökum formsins á kettlebellkúlunni er þyngdarpunkturinn á öðrum stað en í venjulegu lóði. Formið, ásamt því að kúlan getur færst "í kringum höndina" eftir því hvaða æfingu verið er að gera, veldur því að auknar kröfur verða á jafnvægi og samhæfingu þegar æft er með kettlebellskúlum. Ekkert íþróttatæki stendur kettlebellskúlunni nærri með tilliti til möguleika. Hún getur komið í staðinn fyrir lyftingastangir, handlóð, brennslutæki, o.s.frv.

Æfingar með kettlebellskúlunum gefa hagnýtan (raunverulegan) styrk, úthald, samhæfingu og aukið þol. Kettlebellskúlurnar draga alla eða meiri hluta vöðva líkamans inn í æfingarnar og gefa þess vegna gífurlega góða og krefjandi þjálfun sem reynist mjög vel úti í daglegu lífi. Þjálfunin er hörð, krefjandi og hver æfing að meðaltali um 30 mínútur. Ef þú ert tilbúinn að leggja mikið á þig verða launin ríkuleg, aukinn styrkur, mun meira úthald, betri líkamsvitund, betri líkamsstaða og síðast en ekki síst, meira sjálfstraust. Þetta eru æfingar fyrir alvöru fólk sem vill ná langt og með réttu hugarfari hafa allir möguleika á að ná langt!

Æfingarnar byggjast á tvenns konar kerfum; hraðar eða dynamiskar lyftur sem eru gerðar af krafti og reyna bæði á vöðvastyrk og úthald samtímis. Stóru vöðvar líkamans eru notaðir til að koma mikilli hreyfingu (sveiflu) á kúluna og hægja snögglega á hraðanum aftur. Þannig eru kröfurnar á styrk vöðvanna mestar í byrjun og enda slíkra æfinga, og það er stuttur tími sem vöðvarnir eru undir álagi, sem þýðir að mögulegt er að framkvæma mikinn fjölda endurtekninga. Hægar lyftur eru gerðar með mestri mögulegu spennu í öllum líkamanum í gegnum alla hreyfinguna. Allir vöðvar líkamans eru því virkjaðir við hægar lyftur, og þar sem álagið á líkamann er jafnt og þétt yfir lengri tíma, er mælt með að hafa endurtekningarnar ekki fleiri en 5-6 í hverju setti. Styrkurinn sem næst við þessar æfingar er gríðarlegur.