Kettlebells.is

Į döfinni

Online Personal Training - Information in English 

Kettlebells Iceland - Einkaþjálfun á Netinu

"Það hefur verið frábært að æfa hjá þér Vala og að sjá og finna hvernig þetta virkar er æðislegt. Allir sem sjá mig í dag tala um þá breytingu sem hefur orðið á mér og halda að ég æfi í marga klukkutíma á dag í líkamsræktarstöð. Ég segi öllum frá töfraæfingunum þínum og að það að æfa svona sé allt annað og betra en að æfa í tækjum í æfingastöð. Ég er stolt yfir því að geta staðið á höndum og spyr alla á mínum aldri hvort þeir geti það þegar talið berst að þjálfun og æfingum. Það eru ótrúlega fáir, sérstaklega á mínum aldri, sem geta staðið á höndum og mér finnst ég vera helv... töff!" Ester 51 árs, eftir 2 mánaða einkaþjálfun

"Eftir að hafa stundað mikið íþróttir til tvítugs þá hafði ég lítið hreyft mig síðustu 10 ár. Ég hafði reynt að fara í almenna líkamsrækt en aldrei enst lengur en í 3-4 vikur. Á þessum 10 árum hafði mér þannig tekist að bæta á mig um það bil 25 kílóum. Ég var farinn að finna fyrir eymslum í baki og löppum við það eitt að fara út í búð og bera innkaupapoka. Ég hef verið mikið erlendis síðustu 3 ár en hafði heyrt að Kettlebells þjálfun væri byrjuð á Íslandi á sama tíma. Þegar ég síðan kom heim í sumar gaf ég mér tíma til þess að lesa mér til um þessar skrýtnu æfingar sem virtust bæði mjög spennandi og öruvísi heldur en ég var vanur.

Í ágúst á þessu ári hafði ég samband við Völu Mörk um að taka mig í 3 mánaða prógram. Hún tók vel í það og hófumst við handa í byrjun september. Ég fann strax á fyrstu tveimur vikunum að þetta var eitthvað fyrir mig. Æfingarnar voru skemmtilegar og fjölbreyttar, þannig að ég fékk aldrei neina leið á að gera það hún setti mér fyrir. Þar fyrir utan voru æfingarnar yfirleitt stuttar og hnitmiðaðar.
Yfirleitt mætti ég tvisvar í viku í Mjölni á æfingar en gerði síðan þrisvar í viku æfingar heima eftir leiðbeiningum Völu. Æfingarnar sem ég gerði heima voru síst auðveldari heldur en þær sem gerðar voru í tímum í Mjölni. Vala veit greinilega alveg hvað hún er að gera og fann ég fljótlega fyrir miklum mun á bæði styrk og þoli. Eftir einungis rúmlega mánuð var ég algjörlega hættur að finna til í bakinu og löppunum og þar með var leiðin einungis uppá við.
Nú er ég búinn að vera í þrjá mánuði hjá Völu og hefur árangurinn verið frábær að mínu mati. Ég hef mist 8 kíló og styrkst gríðarlega. Þar fyrir utan finnst mér verða skemmtilegra að mæta á æfingar með hverri vikunni sem líður en það er alveg öfugt við það hvernig mér leið þegar ég var að stunda almenna líkamsrækt. Aðal ástæðan sem liggur þar að baki er frábært viðmót þjálfara í Mjölni og þá sérstaklega Völu. Hún sér til þess að allir fái þá athygli sem þeir þurfa og gerir um leið æfingarnar það fjölbreyttar að maður veit aldrei uppá hverju hún tekur næst.

Ég get því óhikað mælt með Kettlebells og einkaþjálfun Völu. Ég tel mig sjálfan vera gott dæmi um þann árangur sem hægt er að ná með smá samviskusemi og opnum hug. Í dag get ég ekki ímyndað mér hlutina öðruvísi en að gera allavega æfingar að minnsta kosti 3 daga í viku. Þannig held ég stöðugt áfram að bæta mig og byggja á öllu því sem Vala hefur kennt mér hingað til.
Kettlebells hefur staðið undir öllum væntingum sem ég hafði til þess. Ég vil því þakka Völu Mörk fyrir frábæra einkaþjálfun og fyrir að hafa leitt mig inní þann heilaga sannleik sem er Kettlebells.
Kettlebells for life!!!" Ingólfur Pálsson, Birgðastjóri og landfræðingur

Er fyrir þig ef:

Fyrirkomulag:

Minn bakgrunnur:

Hvað færðu?

Hvað þarft þú að gera?

Það er kostur, en alls ekki nauðsynlegt, ef þú átt ketilbjöllu, sandpoka, sippuband eða önnur hagnýt æfingatæki. Það er alltaf hægt að æfa, annað hvort með líkamann einan að vopni eða með aðstoð umhverfisins (tröppur, brekkur, borð, osfvr) - ég hef æft þannig síðustu 6 mánuði og tala af reynslu.

Þjálfunin er algerlega einstaklingsbundin og hönnuð að þínum aðstæðum og ég legg mikla vinnu í að búa til prógramm sem mætir þínum þörfum.  Það er mjög gefandi að vinna með einstaklingum sem vilja ná árangri og eru tilbúnir að vinna fyrir honum og ef þú ert einn af þeim, þá vil ég vinna með þér. Ég get lofað þér því að ef þú æfir eftir mínu prógrammi í 3-6 mánuði áttu eftir að finna gríðarlegan mun á þér að tímabilinu loknu.

Sendu mér línu á kettlebellsiceland@gmail.com til að skrá þig og fá nánari upplýsingar um verð og fyrirkomulag.

Tækifærin til að æfa eru alls staðar, lærðu að nýta þau!

Vala Mörk