Kettlebells Iceland er brautryðjandi í kettlebellsþjálfun á Íslandi
Vala Mörk, yfirþjálfari, er eini Íslendingurinn með Master Trainer, Level 3 gráðu frá kettlebellsfrumkvöðlinum og einum færasta styrktar- og úthaldsþjálfara heims, Steve Maxwell. Enn sem komið er Vala eini þjálfarinn í heiminum sem Steve Maxwell hefur talið verðskulda þessa gráðu, en Maxwell hefur veitt mörg hundruð þjálfurum út um allan heim réttindi.
Við byrjuðum fyrst allra á Íslandi með reglulega kettlebellstíma árið 2006. Fyrst í stað voru tímarnir þrír á viku, en í dag eru þeir 6-7 sinnum fleiri enda hefur verið stöðug fjölgun í iðkendahópnum frá byrjun. Okkar fólk getur nú mætt á æfingar undir stjórn úrvalsþjálfara á morgnana, í hádeginu eða um eftirmiðdaginn. Frá byrjun höfum við verið með starfsemi okkar í Mjölni á Mýragötunni á besta stað í Reykjavík.
Allir þjálfarar okkar eru með kettlebellskennsluréttindi beint frá Steve Maxwell. Upplýsingar um þjálfara okkar eru hér að neðan.
Við tökum alltaf vel á móti byrjendum og erum reglulega með grunntíma fyrir þá sem þekkja ekki grunnæfingarnar. Hafðu samband við Völu, yfirþjálfara, ef þú hefur áhuga á að prófa, kettlebellsiceland@gmail.com / sími 696 1179.
Fyrir utan kettlebellstímana bjóðum við reglulega upp á réttindanámskeið með Steve Maxwell út um allan heim og seljum ketilbjöllur á Íslandi.
Við notum Facebook mikið til að koma upplýsingum á framfæri og tengja saman þá sem æfa hjá okkur og/eða hafa áhuga á ketilbjöllum. Kíktu endilega á okkur á Kettlebells Iceland á Facebook og sendu okkur vinabeiðni - við erum afskaplega vinagóð!
Guðjón Svansson er framkvæmdastjóri Kettlebells Iceland og sér um öll praktísk mál fyrir félagið. Sendu honum línu á gudjonsv@gmail.com eða hringdu í hann, 857 1169, ef þú lumar á spennandi og skemmtilegum pælingum varðandi starfsemina.
Þjálfarar 2010-2011
VALA MÖRK, Yfirþjálfari, MaxBells Master Trainer, RKC og AKC ketilbjölluréttindi. CrossFit Level I þjálfararéttindi

Vala Mörk er fyrsti og enn sem komið er eini Master Trainer, Level 3 þjálfari Steve Maxwell, en hún fékk náði þeirri gráðu í apríl 2010. Vala fékk MaxBells II þjálfararréttindi í september 2009 og RKC (Russian Kettlebell Club) þjálfararéttindi, fyrst Íslendinga, í ágúst 2006. Hún er fékk AKC (American Kettlebell Club) þjálfararéttindi, einnig fyrst Íslendinga, í janúar 2008. Vala fékk CrossFit Level I þjálfararéttindi í Lima, Perú í maí 2009.
Vala er lærður iðuþjálfi, útskrifaðist frá Ergo- og Fysioterapeutskolen í Óðinsvéum, Danmörku árið 1996. Hún vann sem iðjuþjálfi í 9 ár, fyrst í Danmörku og síðan á Reykjalundi, bæði á miðtauga- og hjartasviði. Vala er með einkaþjálfarapróf frá FIA og hefur unnið sem einkaþjálfari síðan 2003, fyrst í aukavinnu, en í fullu starfi síðan í ágúst 2005.
JÓN VIÐAR ARNÞÓRSSON MaxBells Level II þjálfararéttindi. Jón Viðar hefur verið kennari í ketilbjöllunum síðastliðið ár og hefur æft sjálfur með ketilbjöllur frá því að fyrsta ketilbjallan kom til landsins. Jón Viðar hefur stundað bardagaíþróttir í 13 ár, kennt í 9 ár og er stjórnarformaður Mjölnis, öflugasta bardagaíþróttafélags Íslands.

YRJA DÖGG KRISTJÁNSDÓTTIR MaxBells Level II þjálfararéttindi. Hún er ÍAK einkaþjálfari, styrktarþjálfari hjá Aftureldingu og vinnur einnig sem einkaþjálfari hjá Eldingu í Mosfellsbæ.


AUÐUR OLGA SKÚLADÓTTIR MaxBells Level I þjálfararéttindi. Auður hefur æft með ketilbjöllur síðan 2006 og fékk MaxBells Level I réttindi í september 2009. Auður keppir reglulega í brasilísku jiu jitsu, en hún hefur æft bardagaíþróttir síðan 1995.

BJARNI KRISTJÁNSSON MaxBells Level I þjálfararéttindi. Bjarni hefur æft með ketilbjöllur síðan árið 2007 og fékk MaxBells Level I réttindi í september 2009. Hann hefur æft blandaðar bardagalistir, brasilískt jiu jitsu og mma kickbox frá árinu 2007.

BJARKI RAFN EIRÍKSSON MaxBells Level II þjálfararéttindi. Bjarki datt inn á kettlebellsæfingu árið 2007 og hefur ekki sleppt bjöllunum síðan.

GUÐJÓN SVANSSON MaxBells Level II þjálfararéttindi. Guðjón kynntist ketilbjöllunum árið 2006 og hefur notað þær síðan til æfinga. Hann er einnig með RKC þjálfararéttindi.

Gestaþjálfari
STEVE MAXWELL

Steve Maxwell er með meistargráðu í íþrótta- og þjálfunarfræðum, tvöfaldur heimsmeistari í Brasilísku Jiu Jitsu og þjálfari á heimsmælikvarða til margra ára. Steve Maxwell er þjálfari sem er opin fyrir nýjungum, er tilbúinn að prófa allt og notar það sem virkar. Hann hefur unnið með Kettlebells í fjölda ára og notar mikið, bæði á þeim heimsklassa BJJ bardagamönnum sem hann þjálfar, venjulegum viðskiptavinum í einkaþjálfun og í eigin þjálfun. Steve Maxwell er 58 ára, en er hraustari en flestir yngri menn og konur (og langflestir jafnaldrar!). Nánari upplýsingar um Steve Maxwell og hans bakgrunn.