Kettlebells Iceland er brautryðjandi í kettlebellsþjálfun á Íslandi
Kettlebells Iceland er fjölskyldufyrirtæki. Vala Mörk og Guðjón, stofnuðu félagið 2006 og byrjuðu þá um haustið fyrst allra á Íslandi með reglulega ketilbjöllutíma fyrir íþróttamenn og almenning.
Við tökum alltaf vel á móti byrjendum og erum reglulega með grunntíma fyrir þá sem þekkja ekki grunnæfingarnar. Hafðu samband við Völu, yfirþjálfara, ef þú hefur áhuga á að prófa!
Við erum með daglega æfingatíma á Ylströndinni í Nauthólsvík og bjóðum auk þess upp á fjaræfingaáskrift fyrir þá sem ekki eru í aðstöðu til að sækja tímana. Fastir þjálfarar á Ylströndinni eru auk Völu og Guðjóns þau Evi Bacsi og Hilmar B. Sigurðsson. Bjarki Eiríksson er reglulegur gestakennari. Allir þjálfarar eru með kennsluréttindi frá Steve Maxwell, sem er einnig reglulegur gestakennari þar sem hann tekur alltaf allavega einn tíma með okkar fólki þegar hann er á landinu.
Við höfum einnig síðan 2006 haldið námskeið fyrir alls konar hópa og selt ketilbjöllur í hæsta gæðaflokki út um allt land.
Við erum með vefverslun þar sem hægt er að kaupa ketilbjöllur, æfingaáskrift, peysur og ýmislegt fleira.
Við erum að sjálfsögðu á Facebook – sendu okkur vinabeiðni (Kettlebells Iceland).
Vala Mörk hefur verið aðalþjálfari Kettlebells Iceland frá byrjun. Hún er er eini Íslendingurinn með Master Trainer, Level 3 gráðu frá kettlebellsfrumkvöðlinum og einum færasta styrktar- og úthaldsþjálfara heims, Steve Maxwell. Enn sem komið er Vala eini þjálfarinn sem hefur fengið þessa gráðu hjá Steve Maxwell en hann hefur veitt mörg hundruð þjálfurum út um allan heim kennsluréttindi.
Vala hefur auk þess að sækja námskeið hjá Steve Maxwell, sótt og staðist réttindanámskeið hjá AKC (American Kettlebell Club) og RKC (Russian Kettlebell Challenge) og er einnig með CrossFit kennsluréttindi.
Guðjón sér aðallega um reksturinn á félaginu, auk þess að vera með fasta útitíma á Ylströndinni. Hann er með Level 2 kennsluréttindi frá Steve Maxwell og RKC kennsluréttindi.
Hafa samband:
Vala Mörk, vala@kettlebells.is / 696 1179
Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169