Naglar á Norðurlandi!

Rétt um 40 manns mættu á grunnnámskeið í ketilbjölluþjálfun sem við héldum á Blönduósi og Hvammstanga fyrr í mánuðinum. Öflugir hópar á báðum stöðum og fólk fljótt að tileinka sér grunntæknina. Í skoðun er að fara fljótlega aftur í heimsókn í Húnavatnssýslurnar og kafa þá dýpra með hópunum í ketilbjölluæfingar.

Næstu námskeið á landsbyggðinni eru í undirbúningi, við hvetjum áhugasama til að hafa samband og “panta” okkur í heimabyggð! Best er að senda tölvupóst á gudjon@kettlebells.is

Þetta eru stutt og hnitmiðuð grunnnámskeið í ketilbjölluæfingum þar sem farið verður yfir helstu grunnæfingarnar og hvernig æfingar auka styrk, úthald og snerpu hjá ungum sem öldnum. Námskeiðin henta sérstaklega þeim sem æfa sjálfir og vilja ná meiri árangri í eigin æfingum. Þátttökugjaldið er 1.500 kr. Ketilbjöllur verða til sölu á staðnum á 25% afslætti í tengslum við námskeiðin.

Ketilbjöllunámskeið á Blönduósi og Hvammstanga!

Þá er komið að því, fyrstu ketilbjöllunámskeiðum okkar fyrir fólkið (ekki þjálfaranámskeið) utan höfuðborgarsvæðisins. Við byrjum á Blönduósi þriðjudaginn 17. janúar og verðum svo á Hvammstanga á miðvikudeginum 18. janúar. Undirbúningur fyrir næstu heimsóknir er á fullu swingi, en við ætlum að heimsækja alla bæi, þorp og sveitir landsins í ár – svo lengi sem heimamenn vilja taka á móti okkur!

Þetta eru stutt og hnitmiðuð grunnnámskeið í ketilbjölluæfingum þar sem farið verður yfir helstu grunnæfingarnar og hvernig æfingar auka styrk, úthald og snerpu hjá ungum sem öldnum. Námskeiðin henta sérstaklega þeim sem æfa sjálfir og vilja ná meiri árangri í eigin æfingum. Þátttökugjaldið er 1.500 kr. Ketilbjöllur verða til sölu á staðnum á 25% afslætti í tengslum við námskeiðin.

Námskeiðið á Blönduósi er kl. 17.30 – 19.30, þriðjudaginn 17. janúar og verður haldið í íþróttahúsinu. Skráning og nánari upplýsingar, Egill Steingrímsson, 858 0850 og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169 / www.kettlebells.is

Námskeiðið á Hvammstanga er kl. 18.00 – 20.00, miðvikudaginn 18. janúar og verður haldið í Grunnskólanum á Hvammstanga. Skráning og nánari upplýsingar, Ingveldur Ása Konráðsdóttir, veldur@gmail.com og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169 /www.kettlebells.is

Viltu slást í hópinn?

Við höfum nú verið með 8 fasta æfingatíma á viku á Ylströndinni í Nauthólsvík síðan í maí og æft þar í allan vetur án þess að missa úr æfingu. Æfingahópurinn er frábær! Málið er ekki flóknara en það. Þeir sem mæta á æfingar hafa gaman af því og það smitar út frá sér. Þetta er alvöru fólk sem fílar súrefni, átök og áskoranir. Og uppsker eftir því. Æfingarnar eru fjölbreyttar, enginn tími er eins. Sumir mæta í hádeginu, sumir seinni partinn, sumir blanda þessu saman. Æfingafélagar okkar geta mætt frjálst í alla tíma.

Þjálfararnir eru ólíkir, en allir með brennandi áhuga á ketilbjöllum og annars konar lifandi og “functional” æfingum. Með ketilbjöllunum notum mikið æfingar með eigin líkamsþyngd og lífræn æfingatæki (sem hafa líka annað hlutverk í lífinu, fyrir utan að nýtast vel til æfinga) eins sandpoka, sleggjur, stór dekk og kaðla. Svo auðvitað heimatilbúin æfingatæki, sbr. vatnspípuna frá Gauja og járnkylfurnar hans Hilmars.

Það er pláss fyrir nokkra í viðbót í hópinn okkar, ekkert óhemjumarga samt, við viljum vera með passlegan fjölda á æfingum. Líkamlegt form, aldur, stærð, kyn, atvinna, uppvöxtur eða stjórnmálaskoðanir skipta ekki máli – í okkar hópi er pláss fyrir alla. Það er að segja alla sem fíla ferskt loft, átök og skemmtilegar áskoranir!

Ef þú ert í þeim hópi og vilt prófa – smelltu línu á Völu, yfirþjálfara, vala@kettlebells.is eða hringdu, 696 1179 til að bóka prufutíma. Hún finnur strax tíma fyrir þig!

Vertu fyrirmynd – Æfðu (líka) heima

HM kvenna í handbolta leysti úr læðingi mikla umræðu um mikilvægi þess að börn hefðu jákvæðar fyrirmyndir. Einstaklinga sem hvettu þau til að stunda íþróttir og þess vegna væri mikilvægt að styðja vel við bakið á afreksíþróttamönnum þjóðarinnar. Ég er alveg sammála þessu, það er mjög hvetjandi að fylgjast með afreksíþróttamönnum gera góða hluti, hvort sem um landslið eða einstakling er að ræða. Árangur fyrirmyndanna hvetur börn og fullorðna til að hreyfa sig og æfa reglulega. Einstaklingar á borð við Annie Mist og Gunnar Nelson eru gott dæmi um svona fyrirmyndir, sömuleiðis handboltalandsliðin okkar.

Við þurfum hins vegar ekki alltaf að leita langt yfir skammt. Fyrstu fyrirmyndir barnanna erum við foreldrar og eldri systkyni og börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Ef við sitjum í sófanum alla daga og kvöld með álbauk í annarri og fjarstýringu í hinni, þá verður það hluti af eðlilegri heimsmynd barnanna og þau líkleg til að detta jafnt og þétt inn í sama mynstur.

Ef við förum alltaf út í bæ til að æfa og skiljum krakkana eftir heima eða í pössun einhver staðar, missa þau af upplögðu tækifæri til að læra beint af aðalfyrirmyndunum sínum. Það er frábært að æfa reglulega þar sem manni líður vel og gera skemmtilegar æfingar sem skila tilætluðum árangri, en það er enn mikilvægara fyrir þá sem vilja hvetja afkomendurna til dáða að sýna þeim í verki – ekki bara orði – hvernig maður heldur sér hraustum,  sterkum og heilbrigðum. Og þarf ekki að gerast úti í bæ.

Við eigum góða vini sem nýlega breyttu bílskúrnum sínum í litla æfingastöð. Ég er ekki að tala um að þau hafi keypt sér dýr æfingatæki, sett upp sjónvarpsskjái, hlaupabretti og augnskanna til að komast inn í bílskúrinn. Nei, nei, þau tóku bara aðeins til – hentu gömlu drasli, röðuðu þéttar í hillurnar og gerðu pláss á gólfinu. Hengdu krók í loftið og í hann einföld bönd til að gera róður og upphífingar í. Smelltu nokkrum rúmfatalagersjógadýnum á gólfið.  Svo eru þau með nokkrar mismunandi þyngdir til að gera styrktaræfingar með – þetta getur verið hvað sem er, mismunandi stórir steinar, pokar með sandi, lóð, ketilbjöllur, dekk eða niðursöguð ösp. Í sjálfu sér þarf enga aukaþyngd til að gera erfiðar og gefandi styrktaræfingar, prófið bara að gera handstöðuarmbeygjur eða hnébeygjur á öðrum fæti (pistol) til að sannreyna það. Og það þarf heldur ekki bílskúr eða sérstakt æfingaherbergi. Það má nýta stofuna eða fara út, náttúran er frábært æfingasvæði.

Í stað þess að æfa í sitthvoru lagi (eða æfa alls ekki) æfa þau hjónin nú saman í bílskúrnum 2-3 sinnum í viku. Fyrst fylgdust krakkarnir spennt með og léku sér á kantinum, svo vildu þau fá að vera með og æfa nú oft með foreldrunum – það er alltaf hægt að laga allar æfingar að ólíku getustigi svo það er ekkert vandamál. Mögnuð þróun sem hefur skapað nýjar og góðar fjölskyldustundir fyrir utan öll þau jákvæðu heilsufarsáhrif sem æfingarnar hafa haft á bæði foreldra á börn. Sannar fyrirmyndir fyrir bæði sín eigin börn og aðrar fjölskyldur.

Svo það sé á hreinu, þá er ég ekki að hvetja fólk til að hætta að æfa annars staðar en heima hjá sér. Ég er bara að benda á hvað það er mikilvægt að æfa líka í kringum börnin, skemmtilegast er að æfa með þeim. Þakka þér lesandi góður að lokum fyrir að lesa þennan fyrsta fjölskylduæfingapistil ársins. Vona að hann og þeir vikulegu pistlar sem á eftir munu fylgja muni nýtast einhverjum fjölskyldum vel.

Guðjón Svansson, fjögurra barna faðir og áhugamaður um heilbrigðar fjölskyldurgudjon@kettlebells.is /857 1169

Gleðileg jól!

Ketilbjölluæfingar á Ylströndinni yfir hátíðarnar:

  • Þorláksmessa, 23.des: 12.10
  • 24-26.des: Frí
  • Þrið, 27.des: 17.10
  • Mið, 28.des: 12.10 og 17.10
  • Föst, 30.des, 12.10
  • Gamlársdagur, 12.00, nýársæfingin góða „12-mánuða áskorunin“ sem við tökum til að bjóða nýja árið velkomið til okkar!
  • Nýársdagur, frí
  • Mán, 2. Jan, 17.10

Við þökkum öllum snillingunum sem hafa æft með okkur í ár kærlega fyrir frábæra samveru, sömuleiðis eðalfólkinu sem starfar á Ylströndinni fyrir að hafa tekið svona vel á móti okkur! Hlökkum til að halda samstarfinu áfram á nýju ári :)

Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og góðra stunda yfir hátíðarnar.

Jólakveðjur frá öllum í Kettlebells Iceland!

Maxwell mætir í mars!

Einn af fremstu styrktar- og úthaldsþjálfurum heims, Steve Maxwell, kemur til Íslands í mars 2012 til að halda nýtt námskeið fyrir þjálfara, leiðbeinendur og alla þá sem vilja læra að auka styrk, úthald og liðleika á heildrænan og skynsaman hátt.

Þetta er 6 árið í röð sem Steve Maxwell kemur til Íslands til að halda námskeið með Kettlebells Iceland. Samtals hafa mörg hundruð Íslendingar komið á námskeið til hans og hafa undantekningalaust verið ánægðir með námskeiðin hans, enda leggur hann líf og sál í þau og virkilega nýtur þess að miðla af reynslu sinni til annarra.

Námskeiðið í mars er gríðarlega spennandi, en Steve er búinn að ganga með það í maganum í langan tíma. Það heitir “The Fundamentals of Human Movement Certification” og snýst í stuttu máli um allt það sem Steve Maxwell stendur fyrir. Í stað þess að horfa á eitt æfingatæki (ketilbjöllur, eigin líkama, osfrv), fókuserar Steve á þessu námskeiði á hreyfingar mannsins út frá kerfi sem hann hefur notað lengi á sjálfan sig og aðra. Málið snýst um að byggja upp styrk og úthald þannig að líkaminn sé í góðu jafnvægi. Ef þú getur pressað, þarftu líka að geta togað (ketilbjöllupressur vs upphífingar, t.d.), ef þú getur lyft hálfu tonni í hnébeygju, en getur ekki gert eina hnébeygju án aukaþyngdar á einum fæti (e.pistol), þarftu virkilega að vinna með liðleikann. Ef þú vilt ekki verða gamall fyrir aldur fram þarftu að byggja upp eða viðhalda sprengikrafti (með hoppum, t.d.) og smyrja reglulega alla liði með einföldum liðleikaæfingum (e. joint mobility).

Námskeiðið snýst þannig um prinsipp sem hægt er að nota í öllum aðstæðum, hvort sem það er úti í náttúrunni eða innandyra. Ýmis konar æfingatæki koma við sögu, ketilbjöllur, steinar, sandpokar, kaðlar, líkaminn og fleira skemmtilegt, en möguleikarnir eru nánast óendanlegir hvað þau varðar.

Bestu meðmælin með námskeiðum Steve Maxwell eru þau að þeir sem hafa einu sinni komið á námskeið með honum, vilja koma aftur og læra meir af kappanum. Í dag má finna þjálfara sem hafa sótt Maxwell-námskeið út um allt Ísland og í flestum æfingastöðvum, stórum sem smáum, á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis hefur mikill fjöldi einstaklinga, sem æfa fyrir sjálfa sig, sótt námskeið og haft gagn og gaman af.

Námskeiðið er kennsluréttindanámskeið sem þýðir að þátttakendur læra að kenna öðrum um leið og þeir læra fyrir sjálfa sig. Sömuleiðis er farið yfir hvernig á að leiðrétta og laga tækni, en rétt framkvæmd æfinga hefur alla tíð verið í forgrunni hjá Steve Maxwell. Til þess að öðlast réttindin þurfa þátttakendur í lok námskeiðs að geta sýnt fram á skilning á aðferðafræðinni og hæfni til að miðla henni áfram.

Námskeiðið er á sérstöku innleiðingarverði árið 2012, en verður á sama verði og önnur réttindanámskeið kappans árið 2013. Við náðum jafnframt að kría út smá aukaafslátt fyrir “íslensku víkingana” sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá Steve Maxwell, en hann er mikill áhugamaður um sögu landsins og þjóðarinnar. Þeir sem vilja nýta sér þennan afslátt og tryggja sér sæti á námskeiðinu geta gert það í vefbúðinni okkar.

Skráning á námskeiðið í vefbúð.

Við fáum sjálfkrafa tölvupóst við greiðslu og sendum um hæl staðfestingu á skráningu á námskeiðið. Einnig er hægt að skrá sig á námskeiðið á vefsíðunni www.maxwellsc.com.

Aðeins 15 sæti eru í boði á námskeiðið og nokkur sæti eru þegar farin, svo áhugasamir eru hvattir til að bíða ekki of lengi með að skrá þátttöku.

Nánari upplýsingar um námskeiðið má lesa hér, sömuleiðis gefur nýtt blog Maxwells mjög góða mynd af því hvernig hann mun nálgast námskeiðið.

Áhugasamir geta einnig haft samband við Guðjón í síma 857 1179 eða með tölvupósti, gudjon@maxwellsc.com og fengið nánari upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðsins.

25% jólaafsláttur af ketilbjöllum!

Við viljum enda árið á ferskum nótum og höfum ákveðið að bjóða 25% jólaafslátt af ketilbjöllum í vefverslununni okkar núna í desember!

Við hvetjum sérstaklega fjölskyldur til þess að nýta sér þetta tilboð, við þekkjum af eigin reynslu að það er ekki bara gaman að æfa saman, heldur líka hvetjandi og gefandi. Svo er líka upplagt að fá afa og ömmur með í æfingarnar! Þau geta meir en þið haldið!!

Í janúar ætlum við að fara í gang með verkefni sem gengur út á fjölskylduæfingar – nánar um það á nýju ári, en við munum ferðast um allt land til að kynna það og kenna ungum sem öldnum að sveifla ketilbjöllum :)

Kíkið á þetta og hafið það gott um hátíðarnar!

Ketilbjöllur og snjór!

Hér er einföld og skemmtileg æfing fyrir þá sem nenna ekki að hanga inni í svona góðu veðri. Þú byrjar á “SnowUps”, tekur svo “SnowCrawl” á tveimur bjöllum og endar á upphífingum í hringjum, slá, stillans eða hverju sem þú kemst í. Við mælum með 5 umferðum. Enjoy!

Ketilbjöllusveiflan – Spurt og svarað

Ketilbjöllusveifla er fyrsta æfingin sem við kennum þegar fólk er að byrja í ketilbjölluæfingum hjá okkur. Þetta er grunnæfing númer eitt. Í henni lærir maður að beita sér á sama hátt og maður gerir í meirihluta ketilbjölluæfinganna, að láta miðju líkamans vera í aðalhlutverki við hreyfinguna.

Hvað er ketilbjöllusveifla?

Ketilbjöllusveifla, eða kettlebell swing eins og æfingin heitir á ensku, er hreyfing þar sem maður heldur á ketilbjöllu með báðum höndum, sveiflar henni  afturábak milli fóta og í beina línu fram (eins og maður sé að fara að kasta henni) með því að nota sprengikraft frá mjöðmunum. Í stað þess að sleppa bjöllunni og kasta henni fram, þá fylgir maður henni sömu leið tilbaka og færir um leið mjaðmirnar aftur („loading the hips“) til að undirbúa vöðvana undir næstu sveiflu og kraftinn sem þarf í hana. Þessi æfing tekur á flesta vöðva líkamans og styrkir sérstaklega þá vöðva sem við notum í spretti, stökk og sprenguæfingar, sem og bak- og magavöðva.

Hver er tilgangurinn með æfingunni?

Æfingin reynir á langflesta vöðva líkamans, frá toppi til táar, og styrkir þar með allan líkamann sem eina heild. Henni fylgir einnig mikil brennsla um leið og unnið er með styrk og úthald. Vinnan sem þarf að útfæra við endurteknar sveiflur er orkufrek og krefjandi, enda er ketilbjöllusveifla fjölvöðvaæfing og slíkar æfingar eru bráðnauðsynlegur þáttur í alhliða líkamsþjálfun. Ketilbjöllusveiflur eru einnig góðar fyrir þá sem þurfa að koma jafnvægi á vöðvastyrk og til að fyrirbyggja álagsmeiðsl hjá íþróttamönnum.

Skiptir tæknin máli? Hvernig á að gera?

Æfingin sjálf er í raun fremur einföld, en rétt beiting er gríðarlega mikilvæg og það er mjög algengt að fólk geri sveifluna vitlaust. Vöðvahóparnir í „aftari vöðvakeðjunni“ eru í aðalhlutverki í ketilbjöllusveiflunni, þ.e.a.s. vöðvarnir aftan á lærum, rassvöðvar og bakvöðvar. Einnig þarf að passa að halda öxlum aftur, brjóstbaki beinu og nota vöðvana á því svæði til að vinna á móti togi bjöllunnar.

Á uppleiðinni í sveiflunni eykst krafturinn sem togar líkamann úr jafnvægi og því mikilvægt að standa fast á jörðinni og halda þyngdinni sérstaklega vel á hælunum. Með því að standa fast í hælana gefur maður einnig aftari vöðvakeðjunni skýr skilaboð um að hún eigi að framkvæma vinnu. Í efstu stöðunni (þegar bjallan er í hæð við hökuna) á að spenna kviðvöðva, rassvöðva og vöðva framan og aftan á lærum og gæta þess að rétta alveg úr mjöðmum og hnjám. Þegar bjallan er síðan á niðurleið er mikilvægt að fylgja henni, ekki streitast á móti, eingöngu að stýra leiðinni sem hún á að fara, án þess að hægja á hreyfingunni.

Á niðurleiðinni „sest maður aðeins aftur“ með því að beygja mjaðmir um leið, hallar búknum aðeins fram, fettir mjóbakið aðeins og gætir þess að láta hnén ekki fara framfyrir tær. Hnén eiga að halda sinni stöðu og ætið að vera í beinni línu við tærnar. Ástæðan fyrir því að þetta er mikilvægt er, að ef maður leyfir hnjánum að koma fram fer mesta vinnan við hreyfinguna fram í lærvöðvana framanverða. Þar með missir æfingin að miklu leyti marks, en meginhlutverk hennar er að styrkja aftari vöðvakeðjuna sem er veikari en sú fremri hjá flestum.

Ástæðan fyrir því að maður á að spenna rassvöðva er, að sterkir rassvöðvar hjálpa bakinu og gera það sterkara. Með því að spenna rassvöðvana meðvitað er maður um leið að gefa þeim skilaboð um „Hey, þið eigið að framkvæma vinnu!“ en veikir rassvöðvar eru mjög oft tengdir bakvandamálum.

Kviðvöðvarnir eru mikilvægir í þessu ferli líka, en þeirra verkefni er það sama og rassvöðvanna, að hjálpa bakinu við vinnuna og tryggja stöðugleikann. Ef maður gleymir að spenna kviðvöðvana á uppleiðinni og í efstu stöðu, getur það gerst að álagið á mjóbakið verður mikið,  viðkomandi hallar afturábak þegar bjallan er í efstu stöðu,  fettir mjóbakið of mikið og eykur þrýsting á brjóskin milli hryggjarliða í mjóbaki. Spenntir kviðvöðvar hindra þetta og við notkun og spennu, þá styrkjast þeir einnig.

Ketilbjöllusveifla - neðsta staða

Ketilbjöllusveifla - efsta staða

Deildar meiningar eru um það hvort endastaða ketilbjöllusveiflunnar eigi að vera frammi eins og ég vel að kenna sveifluna, eða upp fyrir höfuð. Aðalástæðurnar fyrir því að ég vel að sveifla í bringu/nef-hæð en ekki hærra, eru tvær. Í fyrsta lagi því það er erfitt fyrir axlirnar að halda á þungum hlut fyrir ofan höfuð þegar gripið er þröngt, eins og handfangið á bjöllu er. Þetta er mjög þröng staða fyrir axlir og axlaliðirnir ekki í sinni sterkustu stöðu þegar handleggir eru læstir lóðréttir, með stutt bil á milli þeirra. Í öðru lagi þarf þarf að hafa verulega mikinn styrk í kviðvöðvum til að hindra mjóbakið í að fara í mikla fettu og auka þrýsting á brjósk þegar þungri ketilbjöllu er sveiflað upp fyrir höfuð. Til að stoppa hreyfinguna og snúa henni við er hætt við að viðkomandi missi spennuna í kviðvöðvum og auki fettuna í mjóbaki um leið og hann dregur bjölluna tilbaka. Það er mín reynsla, eftir fimm ára kennslu á ketilbjöllur að hvorugt  þessara atriða eru góð fyrir líkamann, sérstaklega ekki með mikla þyngd, því hef ég alltaf valið að láta ketilbjöllusveifluna enda í beinni línu frá höku.

Hvað á að nota þunga ketilbjöllu?

Þegar verið er að læra tæknina við ketilbjölluæfingar er mikilvægt að velja þyngd við hæfi. Þyngd sem maður ræður vel við en gefur samt skilaboð um hvaða vöðva þarf að nota. Við ketilbjöllusveiflu erum við að nota marga og stóra vöðva, svo passa þarf að bjallan sé ekki of létt. Það getur nefninlega verið erfiðara að kenna góða tækni við ketilbjöllusveifluna með mjög létta bjöllu, þar sem mjög auðvelt er að beita sér rangt í æfingunni með létta bjöllu, t.d. nota mun meiri axlastyrk við sveifluna en á að nota.  Algengast er að konur byrji með 8kg eða 12kg og karlmenn með 12kg eða 16kg. Ef einhver sjúkrasaga er hjá viðkomandi t.d. í baki, geta menn jafnvel þurft að byrja með 8kg bjöllu og konur með 6kg.

Hvað á að sveifla oft?

Í byrjun þarf að gefa líkamanum tíma til að venjast æfingunni. Stundum tekur það nokkrar vikur, því þó vöðvarnir séu fljótir að taka við sér og styrkjast, þá þurfa  sinar og vöðvafestingar lengri tíma, enda blóðflæði og efnaskipti á þeim stöðum mun minna en í vöðvaþráðunum. Liðbönd styrkjast einnig með ketilbjölluæfingunum en þurfa mun lengri tíma, yfirleitt nokkra mánuði.  Það fer mikið eftir líkamsástandi hvers og eins, hversu oft hann/hún getur sveiflað bjöllunni. Ef bakið er viðkvæmt þarf að byrja rólega og með ketilbjöllu í léttari kantinum. Fyrir byrjendur er gott að byrja með að taka 10-20 sveiflur, hvíla svo aðeins og endurtaka þetta til dæmis  4-6 sinnum. Sjá svo hvernig manni líður daginn eftir, hvort harðsperrurnar séu á réttum stöðum :)

Hverjir eiga að sveifla ketilbjöllum?

Ég held að ketilbjöllusveifla gagnist eiginlega öllum. Það mun aldrei verða þannig að einhver ein æfing eða hreyfing henti öllum, en sveifla er ein af þeim æfingum sem ég held að sem flestir hafi gott af því að hafa sem hluta af sínu þjálfunarprógrammi. Æfingin styrkir bakið sem og vöðva sem styðja mikið við bakið, en það er einmitt það svæði sem hvað flestir hafa þörf fyrir að styrkja.

Er hægt að sveifla of mikið?

Eins og með allar æfingar, þá getur komið fyrir að maður ætli sér of mikið og meiði sig. Ef maður sveiflar það mikið, of lengi eða með það mikla þyngd, að vegna þreytu fer tæknin hjá manni við æfinguna að verða léleg, þá þarf að taka hvíldarpásu og jafnvel velja léttari bjöllu eða færri eða styttri lotur. Ketilbjöllusveifla er vöðvaúthaldsæfing og þó æfingarnar eru yfirleitt settar upp þannig að maður sveiflar kröftugt og í stuttan tíma, getur verið gott að taka langar lotur öðru hvoru (allt að 5 mín) með viðráðanlega þyngd. Hins vegar er mjög gott að nota ketilbjöllusveiflu til að auka sprengikraft og styrk, og það er gert með því að nota þyngri ketilbjöllu og taka þá færri endurtekningar í nokkrum lotum.

Dæmi um uppsetningu á æfingaprógrammi fyrir ketilbjöllusveiflur:

Mikilvægt er fyrir líkamann að venjast hreyfingunni. Eins og með flestar æfingar sem maður prófar í fyrsta sinn, þá er alltaf möguleiki á að maður fái svolitlar harðsperrur og því gott að byrja rólega. Hér er hugmynd að uppsetningu æfinga í fjórar vikur fyrir byrjanda sem ekki á við nein meiðsli að stríða. Hægt er að taka það eitt og sér eða bæta því við núverandi æfingaprógramm, en þá mæli ég með því að hafa ketilbjöllusveiflurnar snemma í æfingunni.

1 vika – Mánudagur: Swing 15sek, pása 45sek, 4 umferðir – Miðvikudagur: Swing 15sek, pása 45sek, 6 umferðir – Föstudagur: Swing 15sek, pása 45sek, 8 umferðir

2 vika – Mánudagur: Swing 15sek, pása 25sek,  6 umferðir – Miðvikudagur: Swing 15sek, pása 25sek, 8 umferðir – Föstudagur: Swing 15sek, pása 25sek, 10 umferðir

3 vika – Mánudagur Swing 20sek, pása 40sek,  6 umferðir – Miðvikudagur: Swing 20sek, pása 40sek, 8 umferðir – Föstudagur: Swing 20sek, pása 40sek, 10 umferðir

4 vika – Mánudagur: Swing 20sek, pása 30sek, 6 umferðir –Miðvikudagur: Swing 20sek, pása 30sek, 8 umferðir – föstudagur swing 20sek pása 30sek 10 umferðir

Gangi þér vel!

Vala Mörk

Ferskt æfingaloft og frábærir æfingafélagar!

Hádegisæfing í október - myndir

Það eru forréttindi að æfa á eins frábæru svæði og Ylströndin er – allt árið um kring. Ferska loftið, umhverfið, birtan, sandurinn, sólin, rigningin, grasið, hrá æfingatækin og svo auðvitað hrikalega ferskir og skemmtilegir æfingafélagar. Það er frelsandi að fara út að æfa þegar maður vinnur inni allan daginn, hvort sem er í hádeginu eða eftir vinnu og sumir eru orðnir háðir sjóböðum eftir æfingar.

Ef þú sem lest þetta heldur að fjölbreyttar styrktar- og úthaldsæfingar í fersku lofti með hvetjandi og skemmtilegum æfingafélögum sé eitthvað fyrir þig, hafðu þá samband við Völu yfirþjálfara, vala@kettlebells.is /696 1179. Við kennum þér á ketilbjöllurnar ef þú hefur ekki prófað þær áður og komum þér inn í hópinn á þínum hraða. Það geta allir æft hjá okkur og það er hægt að velja frjálst milli átta æfingatíma á viku.

Njótum lífsins!

Copyright © 2011 Kettlebells.is