Alþjóðlegt ketilbjölluréttindanámskeið með Steve Maxwell

Ketilbjölluréttindanámskeið Steve Maxwells er viðurkennt út um allan heim, enda hefur hann verið með námskeið í flestum heimshlutum á löngum og farsælum ferli sínum. Námskeiðið er þó ekki bara fyrir þjálfara, heldur alla sem vilja dýpka þekkingu sína á ketilbjölluæfingum.

Skráning í gegnum vefverslun.

Þetta er 6 árið í röð sem Steve Maxwell kemur til Íslands til að halda námskeið með Kettlebells Iceland. Samtals hafa mörg hundruð Íslendingar komið á námskeið til hans og hafa undantekningalaust verið ánægðir með námskeiðin hans, enda leggur hann líf og sál í þau og virkilega nýtur þess að miðla af reynslu sinni til annarra.

Bestu meðmælin með námskeiðum Steve Maxwell eru þau að þeir sem hafa einu sinni komið á námskeið með honum, vilja koma aftur og læra meir af kappanum. Í dag má finna þjálfara sem hafa sótt Maxwell-námskeið út um allt Ísland og í flestum æfingastöðvum, stórum sem smáum, á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis hefur mikill fjöldi einstaklinga, sem æfa fyrir sjálfa sig, sótt námskeið og haft gagn og gaman af.

Námskeiðið er kennsluréttindanámskeið sem þýðir að þátttakendur læra að kenna öðrum um leið og þeir læra fyrir sjálfa sig. Sömuleiðis er farið yfir hvernig á að leiðrétta og laga tækni, en rétt framkvæmd æfinga hefur alla tíð verið í forgrunni hjá Steve Maxwell. Til þess að öðlast réttindin þurfa þátttakendur í lok námskeiðs að geta sýnt fram á skilning á aðferðafræðinni og hæfni til að miðla henni áfram.

Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Guðjón í síma 857 1169 eða með tölvupósti, gudjon@maxwellsc.com til að skrá sig og fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðsins.