Einn af fremstu styrktar- og úthaldsþjálfurum heims, Steve Maxwell, kemur til Íslands í mars 2012 til að halda nýtt námskeið fyrir þjálfara, leiðbeinendur og alla þá sem vilja læra að auka styrk, úthald og liðleika á heildrænan og skynsaman hátt.
Þetta er 6 árið í röð sem Steve Maxwell kemur til Íslands til að halda námskeið með Kettlebells Iceland. Samtals hafa mörg hundruð Íslendingar komið á námskeið til hans og hafa undantekningalaust verið ánægðir með námskeiðin hans, enda leggur hann líf og sál í þau og virkilega nýtur þess að miðla af reynslu sinni til annarra.
Námskeiðið í mars er gríðarlega spennandi, en Steve er búinn að ganga með það í maganum í langan tíma. Það heitir “The Fundamentals of Human Movement Certification” og snýst í stuttu máli um allt það sem Steve Maxwell stendur fyrir. Í stað þess að horfa á eitt æfingatæki (ketilbjöllur, eigin líkama, osfrv), fókuserar Steve á þessu námskeiði á hreyfingar mannsins út frá kerfi sem hann hefur notað lengi á sjálfan sig og aðra. Málið snýst um að byggja upp styrk og úthald þannig að líkaminn sé í góðu jafnvægi. Ef þú getur pressað, þarftu líka að geta togað (ketilbjöllupressur vs upphífingar, t.d.), ef þú getur lyft hálfu tonni í hnébeygju, en getur ekki gert eina hnébeygju án aukaþyngdar á einum fæti (e.pistol), þarftu virkilega að vinna með liðleikann. Ef þú vilt ekki verða gamall fyrir aldur fram þarftu að byggja upp eða viðhalda sprengikrafti (með hoppum, t.d.) og smyrja reglulega alla liði með einföldum liðleikaæfingum (e. joint mobility).
Námskeiðið snýst þannig um prinsipp sem hægt er að nota í öllum aðstæðum, hvort sem það er úti í náttúrunni eða innandyra. Ýmis konar æfingatæki koma við sögu, ketilbjöllur, steinar, sandpokar, kaðlar, líkaminn og fleira skemmtilegt, en möguleikarnir eru nánast óendanlegir hvað þau varðar.
Bestu meðmælin með námskeiðum Steve Maxwell eru þau að þeir sem hafa einu sinni komið á námskeið með honum, vilja koma aftur og læra meir af kappanum. Í dag má finna þjálfara sem hafa sótt Maxwell-námskeið út um allt Ísland og í flestum æfingastöðvum, stórum sem smáum, á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis hefur mikill fjöldi einstaklinga, sem æfa fyrir sjálfa sig, sótt námskeið og haft gagn og gaman af.
Námskeiðið er kennsluréttindanámskeið sem þýðir að þátttakendur læra að kenna öðrum um leið og þeir læra fyrir sjálfa sig. Sömuleiðis er farið yfir hvernig á að leiðrétta og laga tækni, en rétt framkvæmd æfinga hefur alla tíð verið í forgrunni hjá Steve Maxwell. Til þess að öðlast réttindin þurfa þátttakendur í lok námskeiðs að geta sýnt fram á skilning á aðferðafræðinni og hæfni til að miðla henni áfram.
Námskeiðið er á sérstöku innleiðingarverði árið 2012, en verður á sama verði og önnur réttindanámskeið kappans árið 2013. Við náðum jafnframt að kría út smá aukaafslátt fyrir “íslensku víkingana” sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá Steve Maxwell, en hann er mikill áhugamaður um sögu landsins og þjóðarinnar. Þeir sem vilja nýta sér þennan afslátt og tryggja sér sæti á námskeiðinu geta gert það í vefbúðinni okkar.
Skráning á námskeiðið í vefbúð.
Við fáum sjálfkrafa tölvupóst við greiðslu og sendum um hæl staðfestingu á skráningu á námskeiðið. Einnig er hægt að skrá sig á námskeiðið á vefsíðunni www.maxwellsc.com.
Aðeins 15 sæti eru í boði á námskeiðið og nokkur sæti eru þegar farin, svo áhugasamir eru hvattir til að bíða ekki of lengi með að skrá þátttöku.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má lesa hér, sömuleiðis gefur nýtt blog Maxwells mjög góða mynd af því hvernig hann mun nálgast námskeiðið.
Áhugasamir geta einnig haft samband við Guðjón í síma 857 1169 eða með tölvupósti, gudjon@maxwellsc.com og fengið nánari upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðsins.