Var að koma af æfingu í Nauthólsvíkinni. Fólk í útvarpinu að tala um að sumarið sé búið og það hafi varla komið. Hmmm, veðrið áðan var algert sumarveður þó það sé kominn 29. ágúst á dagatalinu. Eftir þetta sumar, sem svo sannarlega hefur ýtt við mínum „æfingaþægindahring“, VEIT ég líka að sumarið hér fyrir sunnan, var frábært! Ég hef verið í Nauthólsvíkinni með útiæfingar í ketilbjöllum, hér um bil hvern einasta dag frá miðjum maí og það er teljandi á fingrum annarrar handar dagarnir sem veðrið var leiðinlegt. Hins vegar nokkuð oft þegar ég hef verið að hafa mig til að fara á útiæfingu, sem mér hefur verið hugsað til kerlingarinnar sem sagði „það er ekki hundi út sigandi, svo ég sendi karlinn!“, en þegar ég er komin á staðinn og byrjuð að hreyfa mig með fólkinu, horfa á sjóinn, fá ferska loftið í andlitið, þá er bara akkúrat ekkert að veðrinu!
Það hafa ansi margir spurt okkur hvar við verðum í vetur „því ekki getum við verið þarna í vetur!“, en júbb, við verðum þarna og munum njóta þess. Íslenski veturinn mun koma og þrátt fyrir hann munu skokkarar skokka úti, sjósundsfólk synda í sjónum, göngufólk ganga á fjöllin OG Kettlebells Iceland æfa á Ylströndinni. Á köldum dögum höfum við aðstöðuna inni á Ylströndinni, við getum farið í hlýju og skjól þegar við viljum og við getum líka æft úti þegar við viljum. Við getum hitað upp inni og svo farið út, við getum æft inni alla æfinguna eða úti alla æfinguna. Það eina sem er pottþétt er að við munum æfa, svitna, púla og hafa gaman að því, í hráu umhverfi, að gera æfingar sem virka!
Ég var alls ekki vön útiæfingum þegar við byrjuðum í Nauthólsvíkinni, og alls ekki ein af þessum verulega „hard core“ sem ekkert bítur eins og sjósundsfólkið sem fer allan ársins hring í sjósund eða íslensku fótboltakrakkarnir æfa úti sama hvernig viðrar! En veðrið fer rosalega mikið eftir viðhorfinu. Gamla 66°norður klisjan reyndist sönn. Það er ekkert veður leiðinlegt, maður klæðir það bara af sér (og þarf svo yfirleitt að fækka fötum því maður er svo fljótur að hitna..). En svo er það aukabónus að á Ylströndinni er frábært að vera. Skjól fyrir vindi, fallegt umhverfi, skemmtilegt ungt fólk á öllum aldri, nóg af súrefni og það besta, ketilbjöllur og hörkuþjálfarar, Hilmar, Gaui, Eví, Bjarki og ég, öll tilbúin að ylja þér
Vala Mörk, 29. ágúst 2011