“Ég var að jafna mig eftir brjósklosaðgerð þegar ég byrjaði að æfa hjá Kettlebells Iceland. Æfingarnar hafa styrkt mig verulega og þol og liðleiki hafa aukist. Það sem mér finnst best við æfingarnar eru hvað þær eru fjölbreyttar. Það eru engar líkur á því að maður fái leiða á að mæta aftur og aftur í sömu tímana.”
Jón Páll Jónsson, 41 ára. Fjármálastjóri
“Ég kynntist bjöllunum fyrir tæpum tveimur árum. Þær hafa gjörbreytt mínu líkamlega atgervi. Í fyrsta skipti á ævinni hef ég öðlast alvöru styrk og úthald sem er sýnilegt og skilar sér í leik og starfi mínu. Hinn heimilislegi andi, mjög svo fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar, þar sem hver og einn er einungis að keppa við sjálfan sig, hafa gert það að verkum að ég mæti reglulega á æfingar og hlakka alltaf til að mæta og leiðist aldrei.”
Sigrún Eðvaldsdóttir 44 ára. Konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, einleikari og fiðlukennari
“Þegar ég byrjaði að æfa kettlebells fyrir um ári síðan var ég of grönn og að reyna að koma mér í kjörþyngd. Bjöllurnar hafa ekki einungis hjálpað mér að komast í kjörþyngd, heldur er ég sterkari en ég hef nokkurn tímann verið og þolið hefur aldrei verið betra. Það frábær andi á æfingum og maður verður aldrei leiður því æfingarnar eru svo rosalega fjölbreyttar.”
Sigurlín Guðmundsdóttir, 30 ára sjúkraliði.
“Þegar ég byrjaði í ketilbjöllum hjá Kettlebells Iceland átti ég við mikla bakverki að stríða. Eftir einungis hálft ár í bjöllunum var ég algjörlega verkjalaus. Ketilbjöllurnar eru skemmtilegustu og áhrifaríkustu æfingar sem ég hef nokkru sinni stundað og hafa þær hjálpað mér að byggja upp meiri sprengikraft og liðleika en ég taldi mögulegt.”
Jóhann Haraldsson, 20 ára nemi í hugbúnaðarverkfræði við HÍ
“Ég byrjaði að æfa hjá Kettlebells Iceland fyrir u.þ.b. níu mánuðum síðan og hreifst strax af fjölbreyttum æfingunum, stemningunni og baráttuandanum sem einkennir tímana. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa því þolið er margfalt betra en það var þegar ég byrjaði auk þess sem ég hef bætt verulega við styrk minn, kraft og úthald sem eru einmitt einkunnarorð Kettlebells Iceland. Ef einhver hefði sagt mér fyrir níu mánuðum síðan að ég gæti náð þessum árangri með því að æfa í 45 mínútur í senn, þrisvar til fjórum sinnum í viku þá hefði ég alls ekki trúað því. Ketilbjöllurnar eru málið!”
Jón Ómar Árnason, 39 ára kerfisfræðingur og gítarleikari
“Með ketilbjölluæfingunum hef ég öðlast meiri alhliða styrk og betra úthald en með nokkurri annarri líkamsrækt sem ég hef lagt stund á. Á hverri æfingu má segja að mér takist að koma sjálfri mér á óvart, svo fljótt byggjast upp styrkur og þol. Þar fyrir utan kemst líkamsræktin aldrei upp í einhæfa rútínu, sem er mikill kostur ef maður ætlar að ná árangri.”
Hildur Edda Einarsdóttir, 31 árs, mastersnemi í stjórnmálafræðideild HÍ
“Kettlebells er án vafa allra besta líkamsrækt sem ég hef prófað. Í Kettlebells sameinar maður styrktar- snerpu og úthaldsæfingar undir vandaðri leiðsögn þjálfaranna Völu og Guðjóns. Stökkkraftur, sprengikraftur, fótavinna og úthald eru töfraorð í körfubolta. Kettlebells bætir þessum orðum í orðabókina þína eða feitletrar þau ef þau eru til staðar. Kettlebells æfingar auka verulega styrk í mikilvægustu vöðvum líkamans, bak- og magavöðvum og að sama skapi eykst liðleiki. Æfingarnar hafa því ekki bara uppbyggjandi áhrif á líkamann heldur líka fyrirbyggjandi því þær hjálpa til við að koma í veg fyrir meiðsli. Kettlebells er fullkomið æfingaprógramm fyrir undirbúningstímabil körfuboltamanna. Ég græt það að hafa ekki vitað af Kettlebells þegar ég var í körfunni og klárlega myndi ég senda mína leikmenn í Kettlebells ef ég væri þjálfari.”
Steinar Kaldal, 31 árs stjórnmálafræðingur og fyrrum fyrirliði KR í körfubolta
“Eftir að ég byrjaði að æfa í Kettlebells hefur styrkur og þol aukist til muna. Ég er allt annar maður eftir að ég byrjaði fyrir um það bil þremur árum. Það sem hefur hjálpað mér mest er hvað Gaui og Vala eru natin og umhugað um að maður nái árangri og bæti sig stöðugt. Ég hef aldrei haldist í neinni hreyfingu í svona langan tíma og ég á Kettlebells Iceland það að þakka.”
Egill Ólafur Thorarensen, 27 ára tónlistarmaður, Quarashi/The Musik Zoo
“Að æfa hjá Kettlebells hefur stóraukið styrkinn og þolið. Æfingar eru kraftmiklar, fjölbreyttar og ýta virkilega við manni í hvert einasta skipti.
Kettlebells er klárlega það besta sem ég hef æft”
Guðný Tómasdóttir, 23ára, Nemandi við Háskóla Íslands
“Ég var búinn að prófa (styrkja) ýmsar stöðvar en fannst það allt frekar einhæft og var alltaf fljótur að detta út. Nú er ég búinn að æfa hjá Kettlebells Iceland í rúm tvö ár og það er alltaf eitthvað nýtt á hverri æfingu. Áður en ég byrjaði var ég frekar slappur og úthaldslítill en nú hef ég aukið styrk og þol verulega, og kem sjálfum mér sífellt á óvart.”
Kristján Jónsson, 41árs, stálsmiður
„Ég byrjaði fyrst í ketilbjöllum 2007, þá varð ekki aftur snúið. Sem barn og unglingur æfði ég fimleika og síðar dans af ýmsu tagi. Þegar því sleppti var ég dugleg að stunda líkamsrækt í tækjasölum og með lausum lóðum en það var af algjörri skyldurækni.
Með ketilbjöllunum finn ég að ég hef byggt upp alvöru styrk og úthald og hef bætt jafnvægið svo um munar. Ég hef án fyrirhafnar byrjað í dansinum aftur þegar tækifæri hafa gefist og ég hef bætt mig í golfinu. Svo líður mér bara einstaklega vel í skrokknum. Allt þetta með því að mæta 3 í viku í 45 mínútur í senn og gefa sig allan í tímana með góðri hvatningu frá þjálfurunum og félögunum.”
Berglind R. Hilmarsdóttir, 38 ára lögfræðingur
“Ketilbjölluþjálfunin er gríðarlega öflug og hefur hjálpað mér að byggja mig upp, bæði styrk og úthald, fyrir verkefnin innan björgunarsveitarinnar.”
Valdís Guðmundsdóttir, 33 ára, eðlisfræðingur.