Við bjóðum nú upp á ketilbjölluþjálfun af bestu gerð á Ylströndinni í Reykjavík! Alveg eins og Kettlebells Iceland byrjaði fyrst allra á Íslandi með reglulega kettlebellstíma árið 2006, byrjum við nú fyrst allra á landinu með reglulega kettlebellstíma úti í náttúrunni. Utandyra eru engar hindranir, bara möguleikar.
Við erum einnig með önnur skemmtileg tól og tæki sem nýtast vel utandyra (upphífingagrindur, traktorsdekk, sandpoka, jafnvægisrör ofl.) og nýtum allt mögulegt og ómögulegt í umhverfinu til þess að búa til góðar og skemmtilegar æfingar.
Í haust og vetur æfum við bæði innan- og utandyra í Nauthólsvík – allt eftir aðstæðum!
Þetta er hrátt, ferskt og skemmtilegt!
Áhersla er lögð á að byggja upp hagnýtan styrk, sprengikraft og úthald með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum sem hægt er að laga að hverjum og einum.
Takmark okkar er að koma fólki í svo gott alhliða form að það geti gert nákvæmlega það sem vill í lífinu!
Með því að kaupa 6-mánaða eða 12-mánaða æfingakort hjá okkur, gerist þú félagi í Kettlebells Iceland. Félagar frá frían prufutíma og geta mætt frjálst í allar okkar æfingar á Ylströndinni. Við sendum félögum einnig í tölvupósti 3 æfingar á viku (sem nýtist vel ef þú missir af æfingum vegna ferðalaga, vinnu, etc) og allir félagar fá góðan afslátt af ketilbjöllum og öðrum vörum sem við bjóðum upp á.
Við endurnýjum æfingakortin ekki sjálfkrafa, heldur höfum samband við ykkur þegar þau renna út og spyrjum hvort og þá hvernig þið vilji framlengja.
Haust og vetrarstundaskrá (gildir frá og með 15.ágúst 2011)
Mánudagar: 12.10 – 12.55 & 17.10 – 17.55
Þriðjudagar: 17.10 – 17.55
Miðvikudagar: 12.10 – 12.55 & 17.10 – 17.55
Föstudagar: 12.10 – 12.55 & 17.10 – 17.55
Laugardagar: 11.00 – 12.00
Kettlebellstímarnir eru samvinnuverkefni með ÍTR og við höfum aðgang að þeirri frábæru aðstöðu (búningsklefar, sturtur, etc) sem er á Ylströndinni.
Sendu póst á Völu, vala@kettlebells.is til að melda þig í hópinn. Við verðum með reglulega grunntíma á ströndinni fyrir þá sem hafa ekki prófað bjöllurnar áður.
Verðskrá:
Árskort: 49.500 kr (4.900kr á mánuði í kreditkortaáskrift)
Sex mánuðir: 29.500 kr (5.900 kr á mánuði í kreditkortaáskrift)
Stakur tími: 1.500 kr
Prufutími: 1.000 kr
Skráning og nánari upplýsingar: Vala Mörk, vala@kettlebells.is, s:696 1179
